|
|
30.07.2008 21:03:52 / tinpin
Komiði nú sæl..
Nú er að koma gósent tíð skal ég segja ykkur, ég er að fara í frí á morgun eftir hádegi!! Shit,
mig hlakkar svo klikkaðslega til að hálfa væri nóg.. strax á föstudag fer ég svo í bústað með
familíuna.. og verðum við í VIKU!!! Mér líst bara ágætlega á komandi tíma,
spáir rosa finu veðri um helgina og allt í orden bara.
Í dag
var ógéðslegur dagur, ég hef aldrei á einum degi svitnað jafn mikið, þegar það
er svona gott veður og maður er að vinna inni í sjúkum hita, við hliðiná
sundlaug .. þá líður manni bara ILLA! Maður horfir á sundlaugina þráðum augum,
langar hreinlega að flegja sér útí og skítsama um allt sem er í vösunum ..
sími, veski og allt hitt skiptir ekki máli.. maður hugsar bara að henda sér útí
.. en .. ég gerði það ekki þar sem það er brjálað að gera þarna í þessu
blessaða húsi þarna í þorlákshöfn.. landsmót um helgina og allt í rugli. En í
alvöru talað, þvílikur hiti maður.. ég man ekki eftir að hafa upplifað annan
eins dag! Og hélt hreinlega á tímabili að ég myndi bara ekki upplifa neinn
annan dag eftir þennan, en hér er ég nú samt að skrifa blogg! Sei sei
Nóg um
það, það er EKKERT merkilegt að frétta af okkur annars þannig séð. Okkur hlakkar
bara mikið til þess að ég fari í frí og farið að vera eitthvað saman þar sem ég
er búinn að vera að vinna soldið mikið mikið undanfarið.. Fannar braggast bara
alveg ótrúlega, hann er farinn að rífa í mann og standa upp!!!! Eins og ekkert
sé bara, magnaður krakki, við erum búinn að kenna honum að segja „pabbi“ hann segir „baba“ hehe, ótrúlega fyndið, svo er þetta að verða það eina sem hann segir
„baba, baba, baba“ haha snild. en eins og fyrr hefur komið fram er lítið í
fréttum þannig að ég ætla bara að láta þetta gott heita..
> >
Gjörðu svo vel Ösp..
Kv. Valli
»
24.07.2008 20:10:41 / tinpin
ehem.. nú fer allt að gerast skal ég segja ykkur.. eða þannig .. allt í einu langaði mig til að skoða þessa siðu aftur og fór því að grenslast fyrir um lykilorðið sem Tinnu tókst að klúðra í byrjun 2007.. hehe
en allaveg.. hey! family guy... blogga seinna...
»
18.05.2007 14:34:23 / tinpin
já hér er allt gott að frétta...
uuuu...
-Stokkseyri=love it!! "Sveitasæla" út í gegn... gerðum upp
gamalt hús (byggt 1933).. gerðum það ógó flott að innan, eigum
eftir að gera það upp að utan... og okkur líður ekkert smá vel í
því...

-Valli náði sveinsprófinu, ekkert smá duglegur kjellinn...
vinnur núna sem rafvirki hjá Fossraf á Selfossi, nóg að gera í þeim
bransanum...
-Ég er að vinna núna sem flokkstjóri, og auk þess er ég að sjá
um fimleikafélag hér á bæ...gengur eins og í sögu.. allir ýkt
ánægðir og áhugasamir...og margir bara þrælefnilegir skal ég segja
ykkur.. er einnig að fara af stað með mömmufimleika sem verður bara
gaman..

-Fórum á Akureyri um páskana að horfa á Íslandsmótið í Fitness
og styðja hann Heiðar okkar... hann gerði sér lítið fyrir og varð
Íslandsmeistari í Fitness í karlaflokki, og svo varð Marianne líka
Íslandsmeistari í unglingaflokki kvenna... ekkert smá stolt af
þeim.. þetta var alveg ótrúlega skemmtileg ferð í alla staði..
-Gylfi tengdó varð fimmtugur núna um daginn, karlinn sjaldan
litið jafn vel út... og hann ætlar að bjóða okkur krökkunum sínum
til Mallorca núna í júní... vá hlakka svo mikið til....
á Costa sl.
sumar..
-Heyrðu já, við vorum að eignast nýjan fjölskyldumeðlim.. lítinn
sætan kettling... hún var skírð við hátíðlega athöfn Snúlla...
algjör dúlla...
-Hlakka ótrúlega mikið til sumarsins... hef á tilfinningunni að
þetta verði gott sumar... fullt af útileigum og stuði...

En ég held að ég hafi þetta nú ekki lengra.. lífið hér gengur
bara sinn vanagang.. vinna,göngó,sund,borða,tv-gláp,alltaf einhver
í kaffi,stanslaust stuð um helgar.. lífið hér er dásamlegt...

og já eitt enn... Þau Vigga og Hjálmur voru að eignast sitt
annað barn, litla sæta stelpu.. Innilega til hamingju sæta fólk,
get ekki beðið eftir að sjá hana...
og eitt enn í viðbót.. Sonja og Lísa frænkur eru báðar preggó..
hlakka ekkert smá til í október þegar litlu krílin þeirra munu líta
dagsins ljós.. allt að gerast...
Sonja og bumbukrílið

En já þangað til næst, hvenær sem það nú verður... bæjjjj...

Allir að commenta, NÚNA!!... fyrst maður er á annað borð að
blogga hérna.... love you all ;*
Kv.Tinnfríður...
»
03.03.2007 00:59:18 / tinpin
...Kominn tími til måske!
-Fanney sæta gerði sér bara lítið fyrir og ungaði út
gullfallegri stelpu 20.febrúar sl. hún er algjört æði, maður
bráðnar bara við að sjá hana .....
Litla prinsessan

-Síðasta helgin hjá mér í einkaþjálfaraskólanum þessa helgina,
svo bara prófið 24.mars og skal ég pína sjálfa mig áfram í
lærdómnum til að ná því!! gæti orðið strembið!! Er með Unni og
Sigrúni núna í einkaþjálfun hjá mér, og það er bara gaman!! Fíla
þetta í botn..
-Okkur gengur bara ofsavel að sansa kofann okkar á Stokkseyri..
búin að setja parket og mála.. bara eftir að setja upp eldhús-og
baðinnréttinguna.. vííí þetta er svo gaman hlakka BARA til að
byrja að innrétta og raða og allan pakkan.. fæ þó eflaust sjokk
þegar kemur að flutningunum, þ.e.a.s. að vera að flytja frá
æskuslóð minni, fjölskyldu og vinum... en ég er alls ekki alflutt,
ég segi það allavega núna...
-Á morgun eru svo tónleikar í Laugardagshöllinni með INCUBUS..
uppáhaldshljómsveitinni minni EVER... hlakka endalaust til að fara
á þá.. á örugglega eftir að grenja þegar þeir taka "Oil and
Water"... sjæsana.. Ætlum að fara nokkur saman, fara fyrst út að
borða og svo á tónleikana.. stuð stuð ... 
Incubus.. 
-Annars hlakka ég mest til að fá sumarið, fara í ferðalög og
skemmta mér með fjölskyldu minni og vinum.. elska sumartímann..

Ég og Valli síðasta
sumar á ferðalagi... (Bannað að gera grín að stígvélunum
mínum!)
Bless í bili, Tinna.. 
»
31.01.2007 14:22:34 / tinpin
Við hjúin erum að kaupa okkur hús á
Stokkseyri.. ætlum að gera það upp og græja rosa flott...
hlakka til að sýna ykkur "fyrir og eftir" myndirnar...

Annars fara prófin að nálgast hjá okkur báðum.. Valli í
sveinsprófið og ég í einkaþjálfaraprófið....
Svo verður spennandi að sjá hvað Fanney sæta fær í
febrúargjöf..
sæta mín og bumbukrílið...
Á snjósleða um daginn...
Þangað til næst... adios amigos...
»
26.01.2007 20:30:35 / tinpin
»
24.01.2007 18:53:33 / tinpin
Jæja folkens.... loksins komnar inn myndir frá jólatímanum okkar á
Kanarý...
Þær eru undir dálkinum Myndir 2006..
Svo fara að koma inn fleiri myndir frá hinu og þessu....
kv. Tinna og Valli
»
06.01.2007 15:23:07 / tinpin
ohh þetta var bara eiginlega besti jólatími ever!! 
Fórum út til Kanaríeyja þann 21.des og komum heim aftur 3.jan... Ég
er að segja ykkur það, þetta vara algjör draumur... Ekkert
jólastress, ekkert vont veður, heldur bara slökun í faðmi
famelíunnar í sól og blíðu.. Mæli svo með þessu... Þetta var algjör
vítamínsprauta  Svo var svo gott að hitta Baddý og Sigurlaug..
algjörar orkubombur og megapæjur, elska þær ýkt mikið.. og Bróa og
Önnu Leu dúllurassa... og Afa og Laufey dúllupar, hehe eigum við
ekki bara að klappa fyrir því (einkahúmor), og Göggu, Jónda og
strákana þau eru líka dúllurassar..
Svo voru náttla Amma, Bugga, Diddi og Birna þarna með okkur líka...
og þau eru klikkaðir dúllurassar.. Og síðast en ekki síst voru
Mamma, Arnþór og Sindri líka með okkur.. og þau eru sko mestu
dúllurassarnir af öllum..
Við brölluðum heilmikið saman þarna úti og okkur leiddist aldrei..
Löbbuðum heilmikið, spiluðum tennis og asna, láum i sólbaði,
sprikluðum í lauginni, borðuðum góðan mat, spiluðum á gítar, sungum
og dönsuðum, kíktum út á lífið, spiluðum actionary, fórum á
flottustu flamengo-danssýningu ever, fórum í dýragarð og í
óvissuferð... Þetta var geggjað!!! 
En ég vona að þið hafið haft það jafn gott og við sæta fólk
Myndir koma von bráðar, og nóg af þeim... Valli keypti sér glænýja
100þús.króna myndavél hjá Harry, og voru teknar ríflega 900 og
eitthvað myndir, en við munum eflaust bara sýna það besta..
LoveLove,
Tinna Björg og Valdimar sætilíus og dúllurass
»
29.11.2006 15:07:50 / tinpin
hæbb, Valli hér.. núna vill ég sjá alla
kvitta !!!
1. miðnafnið þitt:
2. Aldur:
3. Single or Taken:
4. Uppáhalds bíómynd:
5. Uppáhalds lag:
6. Uppáhaldshljómsveit:
7. Dirty or Clean:
8. Tattoo eða göt:
9. Þekkjumst við persónulega?
10. Hver er tilgangurinn með lífinu?
11. Myndiru bakka mig upp í slagsmálum?
12. Myndiru þaga yfir leyndarmáli ef það skipti mig máli?
13. Besta minningin þín um okkur?
14. Myndir þú gefa mér nýra?
15. Segðu eitthvað skrýtið um þig:
16. Myndir þú hugsa um mig ef ég væri veikur?
17. Getum við hist og bakað köku?
18. Hefuru heyrt kjaftasögu um mig nýlega?
19. Talaru eða hefuru talað illa um mig?
20. Finnst þér ég góð manneskja?
21. Myndir þú keyra með mér hringinn í kringum landið?
22. Finnst þér ég aðlaðandi?
23. Hverju myndiru vilja breyta í mínu fari?
24. Í hverju sefuru?
25. Kæmiru í heimsókn af tilefnislausu, bara til að chilla?
26. Myndir þú koma á stefnumót ef ég myndi bjóða þér?
27. Ef ég ætti einn dag ólifaðann, hvað myndum við gera?
28. Ætlaru að setja þetta á þína síðu svo ég geti fyllt þetta
út?
TAKK... 
»
15.11.2006 18:15:28 / tinpin
Jó fólks!
long time no blogging hjá kallinum, en núna hef
ég ákveðið að skrifa nokkrar línur ykkur til mikillar gleði !
:-D
það sem er á dagskrá hjá mér...
1. Klára allt sem ég þarf að skila í skólanum
fyrir föstudaginn 24.Nov.
2. Fara á Herra Ísland 23.Nov og drekka bjór..
kannski maður líti á sviðið inná milli til að sjá Bigga
stripplast..
3. Sumarbústaðarferð Tuborgar-manna og gesta
helgina 24-26 Nov, þar verður klikkuð stemmning ef ég þekki fólkið
rétt sem er að fara að mæta! drrruuuuullu töff hópur 
4. Missa af dimmiteringu, ekki að ég gráti það
:þ
5. Vinna í des. vonandi 
6. Fara í jólaskap !!!!
7. Fara til Kanarí 20.des í 2 vikur!!! verðum
yfir jól og áramót.
8. Vera fullur á Kanarí, í tilefni þess að ég er
að útskrifast :-D
9. Skemmta mér alveg ótrúlega vel á Kanarí
)
10. koma heim 3.Jan (held ég)
11. Byrja að vinna.
12. Halda eikkura smá
útskriftarveislu.
13. Byrja í Fjölbraut í Breiðholti 9. jan. Er að
fara í upprifjun fyrir sveinspróf.
14. Vera þreyttur vegna langra daga.
15. Fara í sveinspróf og vona að ég
nái.
16. Eiga afmæli og verða 22. ára. 
Jæja, ég nenni ekki að telja upp lengra fram í
tímann, en allavega, þá er þetta á dagskránni hjá mér næstu tvo
mánuði eða svo... Ég hlakka til komandi tíma, sérstaklega að fara í
sumarbústaðinn, því það er svo næstum því næst á dagskránni, en það
verður alveg klikkuð stemmning. Annars er bara brjálað að gera í
skólanum og vinnuni núna, ég er að klára lokaverkefnið mitt og það
hefur bara gengið rosalega vel, virkaði allt í fyrstu tilraun hjá
kallinum :-D Svo er náttla miklu meira en þetta blessaða
lokaverkefni í skólanum, ég er í tvem teikniáföngum og þar þarf ég
að gera slatta í viðbót, dagurinn mætti vera svona um það bil 30
timar, þá væri maður í góðum málum, en ég nenni ekkert að skrifa
meira um þennan skóla, það eru örugglega allir að verða geðveikir á
skólanum núna og nenna ekkert að lesa um þetta 
Eitt sem ég mundi eftir allt í einu, ég er
sennilega að fara að fara að skipta um bíl :-D Toyota Touring 94´
módel, keyrður 81. þúsund :-D eins og nýr það verður bara snild,
veitir ekkert af 4x4 drifinu þar sem ég bý á Akranesi og keyri þar
af leiðandi soldið mikið á milli og svona, svo er það líka bara
miklu öruggara og þá verður Tinna náttla mikið sátt þar sem hún er
alveg ÓTRÚLEGA bílhrædd!!! dúlla.. 
jámm .. ég veit nú ekki alveg hvað ég á að segja
ykkur meira, ég nenni ekki að fara dýpra í alla þessa hluti á
listanum þarna fyrir ofan, tel þetta vera alveg nóg gæti sagt
ykkur aðeins frá Fjölbraut í Breiðholti, en þá er ég farin að tala
um skóla aftur svo ég ætla ekki að gera þar fyrr en ég kem heim að
utan :-D Ég er að hugsa um að láta þetta vera síðustu orðin, en ég
ætla að láta eina mynd fylgja að þessu sinni sem ég tók sjálfur, er
að hugsa um að láta það vera fastan lið hér eftir þar sem ég er að
verða húkt á ljósmyndun 

Lag færslunar : U2 & Green day - The Saints
are coming
Adios my friends... 
Ég tók þessa rétt fyrir austan Stokkseyri, fiffaði svo svarthvíta
litinn í Photoshop
»
11.11.2006 16:05:02 / tinpin
Sl. sunnudagur var merkisdagur

Yngsta systir mín var þá skírð, og fékk hún hið fallega nafn,
Krista Dís. Hún er skírð í höfuðið á foreldrum sínum, Kristni og
Ásdísi.. Mér finnst nafnið ótrúlega fallegt, og hún sjálf er algjör
engill.. Skírnin fór fram heima hjá pabba og Ásdísi og komu
fullt af gestum. Ég og Siggi, fósturpabbi Ásdísar, vorum
skírnarvottar, og er ég ótrúlega þakklát fyrir að hafa fengið það
hlutverk. En það var sko fleira merkilegt við þennan dag, því hin
systir mín, hún Líney Lára var 2 ára og var þetta því
sameiginleg veisla, bæði skírnarveisla og afmælisveisla.. og
kræsingarnar sem voru í boði.. vá namminammi!! ótrúlega flott og
gott En já ég ætla að skella hérna inn nokkrum myndum úr
veislunni, þá fáið þið að sjá hversu yndislegar og sætar systur ég
á.. Systkini mín eru mér ótrúlega dýrmæt, og veit ég fátt betra en
að eiga góða stund með þeim ég elska ykkur :*
(Myndirnar eru undir "Myndir 2006" neðst á síðunni)
Heyrðu já, annars er bara allt gott að frétta hérna af Skaganum!
Er að fara í Rvíkina núna kl.17, erum að fara nokkrir þjálfarar með
nokkra af hópunum okkar á æfingu í nýja Gerplu-salnum.. hlakka bara
til, ætla að reyna að sprikla eitthvað sjálf.. þannig að ekki láta
ykkur bregða ef þið sjáið mig á hækjum á morgun..! Annars er bara
kominn pínu jólafílingur í mann, finnst pínu skrítið að vera fara
að missa af jólunum hérna á Íslandi, enginn snjór eða neitt, heldur
bara sól og sólbað á Kanarí!!! ætlum að taka með okkur eitthvað
af jólaskrauti og skreyta íbúðina okkar og gera kósí oj þetta
verður bara gaman, jæks 
En svona það helsta sem er framundan í nóvember er :
-Vælið, Söngvakeppni Versló.. Arnþór og Dagur taka þátt í
því 
-Kyndó-kveld
-Herra Ísland 2006, allir að fara á ungfruisland.is og kjósa
Bigga 
-Bústaðarferð hjá Tuborgareyri, er verið að panta alveg eins
boli og stuttbuxur á allt liðið! ég verð Prímadonnan nr.11 og Valli
verður Fógetinn nr.11 Sneðugt! Svo ætlar Gunni að halda upp á
afmælið sitt þarna, 23.ára kjellinn...
-Bikarmót í fimleikum 3.-6.þrep
Þannig að það er nóg að gera á litlum bæ.. og núna þarf maður
víst að fara að hengja úr þvottavélinni 
Bið að heilsa að sinni, kv. Tinni..
»
29.10.2006 14:10:46 / tinpin
Búin að slá persónulegt þynnkumet...
já takk fyrir takk...
Oj þið trúið ekki hvað var gaman í
gær!! Ok ... ætla bara að
segja frá deginum í
hnotskurn...
Vaknaði kl.7, keyrði frá
Stokkseyri til Þorlákshafnar á 70 km hraða alla leiðina (er svo
fokking bílhrædd mar)... en já, var svo í íþróttahúsinu í
Þorlákshöfn frá kl. 08.30 - 18.30 á fimleikamóti.. mjög gaman...
strákarnir mínir hrúuðu inn verðlaunum... Stelpurnar stóðu sig líka
ótrúlega vel og fengu slatta af verðlaunum líka.. heyrðu svo var
bara brunað heim, komum fyrst við í höfuðborginni og skiluðum Söru,
Salome og Ester af okkur þar.. og á leiðinni upp á Skagen
spjölluðum ég og mútta alveg hellings.. hún er algjört yndi... svo
þegar ég var komin heim fór ég bara beint í það að græja mig fyrir
ÖMMU-UNG partýið hjá okkur Bimbooos-gellunum.... já við áttum s.s.
að dressa okkur upp eins og ömmur okkar þegar þær voru á okkar
aldri.... ó mæ gad þetta var svo gaman.... en já, ég hitti
stelpurnar á Galito, þar voru þær búnar að vera að háma í sig
dýrindis veislufæði, mér leið eins og ég væri komin aftur í tíman,
á stríðsárin.... múndering á okkur.. þetta var stórkostlegt....fólk
bara: whats going on!... Ragga fær alveg prik fyrir flottustu
hárgreiðsluna og Malla fyrir að gera þetta bara almennilega og vera
í ömmunærbuxum líka.. úr silki... hehe sexy mama... svo lá leiðin
heim til Unnar Johns... og þar var heldur betur drukkið og
hlegið.... fórum í alls konar drykkjuleiki, dönsuðum og vorum bara
heimskar... Fanney afmælisbarn kom svo til okkar... æðislegt að sjá
þessa elsku... heyrðu, svo vorum við bara eitthvað að dansa eins og
mófóar þegar ég ákvað allt í einu að fara út og fá mér sígó, og
þegar ég er að klæða mig í skónna er bankað á útidyrahurðina, og
eru það ekki bara þrjár löggur haha: “Hvað er í gangi hér?” og ég
bara: “Þið verðið eiginlega að spurja hússtjórnandann að því” sagði
ég haha... “Ertu til í að sækja hann fyrir okkur?” Ég labbaði inn í
danshrúuna inn í stofu, pikkaði í Unni og sagði: “Löggan er hérna”
og þá fóru bara allar að öskra!!! Eins og það væri bara geðveikt
ógurlegt!!! Hahahaha, en við lofuðum að hafa lærra.... stuttu síðar
heyrðist svo varla bíp í húsinu, því við strunsuðum bara fljótlega
niðrí bæ... dí... þarna gegnum við, uppdressaðar ungar ömmur með
rauðar varir, með hatta og í pelsum, syngjandi B-I-B-L-Í-A,
Drottinn er minn hyrðir, Kátir voru karlar og fleiri sígilda
slagara.... hehe ertað grínast?! Hvað ætli fólkið á rúntinum hafi
haldið... pifffff we didn’t give a rats ass.... haha.... svo fórum
við í partý til Arnars í smá stund... hlupum svo yfir túnið á móti
gamla apotekinu, skórnir duttu af .. kíktum svo á Mörkina í smá
stund.. hlupum svo aftur yfir túnið í partýið til Arnars... enduðum
svo fyrir rest á Mörkinni.. dansandi drukknar... fórum síðan 6 saman í bílinn hjá Völu svölu, mættum löggunni á
hringtorginu, hún snéri við og elti okkur, við fengum panic-kast,
“Sigrún beygðu þig niður”, “Vala beygðu inn hér” “Nei ekki beygja
hér” “Beygðu þarna” “Nei ekki beygja þarna” “ahhhh” stresskastið...
Eins gott að Unnur var ekki með okkur, þá hefði hún fengið
stress-skituna sína hahaha.... En já, við ákváðum fyrir rest að
Vala mundi bara keyra beint heim til mín og að ég mundi drífa mig
út úr bílnum og þykjast vera að tala við þær... heyrðu stressið var
svo mikið að mér var bara hrint útúr bílnum, ég sagði nokkur orð
við Völu og svo bara bæ.... labbaði hratt að stigaganginum, leit
ekki einu sinni um öxl, og þegar ég opnaði hurðina þá heyrði ég í
löggunni: “JÆJA stelpur”... hahahaha... ég dreif mig bara upp,
þorði ekki einu sinni að kveikja ljósið í stigaganginum svo þeir
myndu ekki vita að ég væri þarna haha... eins og þeir hafi ekki séð
mig haha.. Heimsk!!!
Sofnaði í Arnþórs rúmi um hálf 4
leytið, vaknaði svo eldhress og þunn morguninn eftir...
Eitt að lokum:
Til hamingju með afmælið sæta mín
:*

Kv. Tinna 
»
10.10.2006 19:22:35 / tinpin
Hæ sæta fólk...
Bara að segja frá því að ég eignaðist litla systir í
morgun.... 
Pabbi sendi mér mynd af henni eiginlega um leið, og hún er ótrúlega
falleg.. 
Við förum til Keflavíkur á morgun að skoða kjútípæið.. Hlakka
ekkert smá til!!
Lofa svo að setja inn myndir af skvísunni sem fyrst..
bæbæ
Tinna
»
29.09.2006 19:04:13 / tinpin
»
22.09.2006 16:39:12 / tinpin
Fjarstýring..? neeeei.. meira svona kerti.. neeeii.. nei..
borvél..? nei.. neineinei.. skrifborð...
eikkurir gætu kannast við álíka heimskan húmor, en ef ég man rétt
þá var eitthvað atriði í einum þætti fóstbræðra. Stöð 2 eru
byrjaðir að sýna Fóstbræður frá byrjun fyrir þá sem ekki vita,
persónulega er mér nánast alveg sama, en ætli það sé ekki bara af
því að ég er einn af þeim sem ekki er með áskrift af Stöð 2, en
annars fynnst mér helvíti sniðugt að þeir hafi tekið uppá þessu,
því þetta eru án efa bestu grínþættir ALLRA tíma á Íslandi, Maður
fékk þetta svo mikið á heilan að hálfa hefði verið nóg, sumir gengu
svo langt að "Trúa" á Fóstbræður, ef svo má að orði koma, því einu
sinni, eins og margir muna kannski, þá omu þeir með atriði þar sem
sölumaður gekk í hús og var að selja hlut sem hét "Splint gont og
gengja" eða eikkað álíka.. þar var í hlutverki ef ég man rétt
Sigurjón Kjartansson sem sölumaður og Jón Gnarr sem kaupandi, kæmi
mér ekki á óvart ef að þeir hefðu fengið hugmyndina af þessari
þvælu. En allavega, þá var að einhverjum ástæðum farið að selja
þessa þvælu í búðum Hagkaupa, og fólk var virkilega svo heimskt að
kaupa þetta!! hahaha.. ekki veit ég hvað fólk var að hugsa, en
þetta kostaði ef mig minnir rétt 4990,- CASH!! ... pæliði í
heimskuni, kaupa sér bara splint gont og gengja maður.. ha, hef
hvorrt eð er ekkert við þennan 5000 kall að gera, var löngu hættur
að nota hann... já, ekki er öll vitleysan eins, en mig langaði bara
aðeins að rifja þessa vitleysinga upp, hehe, ef þið eruð að taka
þetta upp þá gæti verið gaman að fá þetta lánað eikkur timan,
annars get ég líka talað bara við fóstbræðrafríkið hana Karen Dröfn
Hafþórsdóttir, hún á þetta allt saman.
En svo ég snúi mér nú að
öðru, þá er ég bara búinn að vera í skólanum síðustu daga og hef
svona sæmilega gaman af, maður er svona rétt að koma sér inní
hlutina, get bara ekki beðið eftir að klára um jólinn, ég veit að
ég hef örugglega sagt þetta oftar en einu sinni hérna, en þetta er
bara svo satt að það nær engri átt.
síðustu helgi var ball með
Skímó í Hótelinu á Selfossi, fínasta ball, gerðum samt smá mistök
þarna verð ég að segja, allt Gaua að kenna, hann lét okkur alla
koma sama í svona "fótboltahring" og setja hendurnar ofaná hvora
aðra, við vissum ekkert hvað hann var að pæla, en svo leiddi þessi
vitleysa útí það að við gerðum svona eins og gert er fyrir
fótboltaleiki, flest lið hrópa nafnið sitt eða berjast eða eikkað..
en NEI! kallið okkar var STOKKSEYRI.. en ég vill meina að ég hafi
ekki tekið mikinn þátt í þessu lúðalegasta atviki sem ég hef
nokkurn tíman upplifað.. þeir sem tóku mestan þátt í þessu voru
Gaui, Steini og Geiri.. algjörir jottar.. gólandi STOKKSEYRI á
balli.. hahahaha.. aðeins heimskari.. ef það hefðu verið eikkurir
Selfyssingar nálægt okkur þá hefðum við sennilega verið lamdir í
köku fyrir að vera mestu lúðarnir á ballinu eða þá a þeir hefðu
DÁIÐ úr hlátri, þannig er það nú bara. nóg um það..
Núna er komin helgi og ég er
bara nokkuð sáttur við það, Diddi, Guffi og Birna koma í heimsókn á
morgun og verða næturgestir, við ætlum að spila á gítarana okkar og
sötra bjór allann daginn, þau verða komin um 12 leytið á morgun,
svo dagurinn verður tekinn snemma  það er bara betra, stefnan er
svo sett á lokahófsball ÍA. Sálin er að spila, ekki er ég nú alveg
sáttur við það, en ég ætla ekki að kvarta, fæ sennilegast frítt...
ég er svo frægur.. eða þannig...
ÓVER END ÁT!!!
Lag bloggsins : System of a down - Question! KLÁRLEGA!!!
Kv. VilliValli p.s. muniði að tékka á myndunum
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|